Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -




Orðskviðirnir 28:4 - Biblían (2007)

4 Þeir sem hafna fræðslu hrósa ranglátum en þeir sem fræðsluna þiggja berjast gegn þeim.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ

Biblían (1981)

4 Þeir sem yfirgefa lögmálið, hrósa óguðlegum, en þeir sem varðveita lögmálið, eru æfir út af þeim. Illmenni skilja ekki hvað rétt er, en þeir sem leita Drottins, skilja allt.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ




Orðskviðirnir 28:4
31 ပူးပေါင်းရင်းမြစ်များ  

En Elía svaraði: „Það er ekki ég sem hef skaðað Ísrael heldur þú og ætt föður þíns með því að þið hafið hafnað boðum Drottins og þú sjálfur fylgt Baölum.


Þá gekk Elía fram fyrir allt fólkið og hrópaði: „Hversu lengi ætlið þið að haltra til beggja hliða? Ef Drottinn er Guð, fylgið honum. En ef Baal er Guð, þá fylgið honum.“ En fólkið svaraði honum ekki einu orði.


Um þessar mundir sá ég fólk troða vínþrær á hvíldardegi í Júda. Einnig sá ég fólk hirða korn og klyfja asna. Það flutti einnig vín, vínber, fíkjur og alls kyns vörur til Jerúsalem á hvíldardegi en ég varaði það við að selja matarbirgðir sínar á þessum degi.


Einn af sonum Jójada Eljasíbssonar æðsta prests var tengdasonur Sanballats frá Hóron. Ég rak hann frá mér.


Hinn óguðlegi gleðst í græðgi sinni, blessar gróða sinn og lítilsvirðir Drottin.


því að hann tekur ekkert af því með sér þegar hann deyr, auður hans fylgir honum ekki til heljar.


Óttalegt og hræðilegt er það sem við ber í landinu.


því Jóhannes hafði sagt við hann: „Þú mátt ekki eiga hana.“


Jesús svaraði honum: „Lát það nú eftir. Þannig ber okkur að fullnægja öllu réttlæti.“ Og Jóhannes lét það eftir honum.


Þegar Jóhannes sá að margir farísear og saddúkear komu til skírnar sagði hann við þá: „Þið nöðrukyn, hver kenndi ykkur að flýja komandi reiði?


En fólkið kallaði: „Guðs rödd er þetta en eigi manns.“


Varð mikil misklíð og þræta milli þeirra og Páls og Barnabasar og réðu menn af að Páll og Barnabas og nokkrir þeirra aðrir færu á fund postulanna og öldunganna upp til Jerúsalem vegna þessa ágreinings.


En nokkrir brynjuðu sig og vildu ekki trúa. Þegar þeir tóku að illmæla veginum í áheyrn fólksins sagði Páll skilið við þá, greindi lærisveinana frá þeim og síðan talaði hann daglega í skóla Týrannusar.


Þeir vita að Guð dæmir rétt og að allir, sem slíkt fremja, eru dauðasekir. Samt fremja þeir þetta og gera að auki góðan róm að slíkri breytni hjá öðrum.


Eigið engan hlut í verkum myrkursins, sem ekkert gott hlýst af, heldur flettið miklu fremur ofan af þeim.


Ykkur er kunnugt að ég hafði áður þolað illt og verið misþyrmt í Filippí en Guð minn gaf mér djörfung til að tala til ykkar fagnaðarerindi Guðs þótt baráttan væri mikil.


Falsspámennirnir eru af heiminum. Þess vegna tala þeir eins og heimurinn talar og heimurinn hlýðir á þá.


Þið elskuðu, mér var það ríkt í huga að rita ykkur um sameiginlegt hjálpræði okkar. En nú kemst ég ekki hjá því að skrifa og hvetja ykkur til að berjast fyrir þeirri trú sem heilögum hefur í eitt skipti fyrir öll verið í hendur seld.


ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:

ကြော်ငြာတွေ


ကြော်ငြာတွေ