Ef bróðir þinn syndgar [gegn þér] skaltu fara og tala um fyrir honum og sé það ykkar einna í milli. Láti hann sér segjast hefur þú endurheimt bróður þinn.
En þegar ég sá að þeir gengu ekki beint eftir sannleika fagnaðarerindisins sagði ég við Kefas í allra áheyrn: „Úr því að þú, sem ert Gyðingur, lifir að heiðingja siðum en eigi Gyðinga, hvernig getur þú þá neytt þá sem ekki eru Gyðingar til að lifa eins og Gyðingar?“