3 Fel Drottni verk þín og þá bera áform þín árangur.
3 Fel þú Drottni verk þín, þá mun áformum þínum framgengt verða.
Áform þín munu heppnast og birta ljóma á vegum þínum.
Ég mundi leita til Guðs og leggja mál mín fyrir hann
Hálli en smjör er tunga hans en ófriður í hjarta, mýkri en olía eru orð hans og þó sem brugðin sverð.
Minnstu hans á öllum vegum þínum, þá mun hann gera leiðir þínar greiðar.
Og Jesús sagði við lærisveina sína: „Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast.
Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð.
Varpið allri áhyggju ykkar á hann því að hann ber umhyggju fyrir ykkur.