16 Betra er að eiga lítið og óttast Drottin en mikinn fjársjóð með áhyggjum.
16 Betra er lítið í ótta Drottins en mikill fjársjóður með áhyggjum.
Betri er lítil eign réttláts manns en auðlegð margra óguðlegra
Blessun Drottins auðgar og erfiði mannsins bætir engu við hana.
Fátæklingurinn lítur aldrei glaðan dag en sá sem vel liggur á er sífellt í veislu.
Betra er lítið með réttu en mikill arður með röngu.
Betri er þurr brauðbiti í næði en veisla í húsi fullu af deilum.
Betri er fátækur maður og ráðvandur en ríkur maður og undirförull.
Betri er hnefafylli af ró en báðar hendur fullar af striti og eftirsókn eftir vindi.
Já, trúin samfara nægjusemi er mikill gróðavegur.