Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -




Jakobsbréfið 5:7 - Biblían (2007)

7 Þreyið því, systkin, þangað til Drottinn kemur. Sjáið akuryrkjumanninn! Hann bíður eftir hinum dýrmæta ávexti jarðarinnar og þreyir eftir honum þangað til hann hefur fengið haustregn og vorregn.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ

Biblían (1981)

7 Þreyið því, bræður, þangað til Drottinn kemur. Sjáið akuryrkjumanninn, hann bíður eftir hinum dýrmæta ávexti jarðarinnar og þreyir eftir honum, þangað til hann hefur fengið haustregn og vorregn.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ




Jakobsbréfið 5:7
32 ပူးပေါင်းရင်းမြစ်များ  

Þeir hugsuðu eigi með sér: „Óttumst Drottin, Guð vorn, sem gefur regn, haustregn og vorregn, á réttum tíma, tryggir oss ákveðna uppskerutíð.“


Vér skulum leita þekkingar, sækjast eftir að þekkja Drottin. Hann kemur jafn áreiðanlega og morgunroði, eins og vorskúr sem vökvar jarðveginn.


Gleðjist, Síonarbúar, og fagnið í Drottni, Guði yðar. Af réttlæti sínu hefur hann sent yður vorregnið og eins og fyrrum mun hann gefa yður vorregn og haustregn.


Biðjið Drottin um regn þegar regntíð seinkar, Drottin, sem eldingarnar sendir, um regn og skúrir. Hann gefur mönnum brauð og gróður jarðar.


Mannssonurinn mun koma í dýrð föður síns með englum sínum og þá mun hann gjalda sérhverjum eftir breytni hans.


Sannlega segi ég ykkur: Nokkrir þeirra sem hér standa munu ekki mæta dauða sínum fyrr en þeir sjá Mannssoninn koma í ríki sínu.“


Mannssonurinn kemur eins og elding sem leiftrar frá austri til vesturs.


Verið þér og viðbúin því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu sem þér ætlið eigi.


Ég segi yður: Hann mun skjótt rétta hlut þeirra. En mun Mannssonurinn finna trúna á jörðu þegar hann kemur?“


Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýi með mætti og mikilli dýrð.


En það er féll í góða jörð merkir þá sem heyra orðið og geyma það í göfugu, góðu hjarta og bera ávöxt með stöðuglyndi.


Jesús svarar: „Ef ég vil að hann lifi þangað til ég kem, hverju skiptir það þig? Fylg þú mér.“


Því barst sá orðrómur út í söfnuðunum að þessi lærisveinn mundi ekki deyja. En Jesús hafði ekki sagt Pétri að hann mundi ekki deyja. Hann sagði: „Ef ég vil að hann lifi þangað til ég kem, hverju skiptir það þig?“


Allt það sem áður er ritað er ritað okkur til fræðslu, til þess að við héldum von okkar vegna þess þolgæðis og uppörvunar sem ritningarnar gefa.


þeim eilíft líf sem leita vegsemdar, heiðurs og ódauðleika með staðfestu sinni í góðri breytni


svo að ykkur brestur ekki neina náðargjöf meðan þið væntið opinberunar Drottins vors Jesú Krists.


En við væntum í andanum að öðlast af trúnni réttlætinguna sem er von okkar.


Þreytumst ekki að gera það sem gott er því að á sínum tíma munum við uppskera ef við gefumst ekki upp.


mun ég gefa landi ykkar regn á réttum tíma, haustregn og vorregn, svo að þú getir skorið upp korn, vín og olíu.


Hann styrki ykkur á allar lundir með dýrðarmætti sínum svo að þið fyllist þolgæði í hvívetna og umburðarlyndi og getið með gleði


Ég minnist stöðugt fyrir augliti Guðs vors og föður hve mikið þið starfið í trúnni, stríðið í kærleikanum og eruð staðföst í voninni á Drottin vorn Jesú Krist.


Hver er von mín eða gleði eða sigursveigurinn sem ég miklast af? Eruð það ekki einmitt þið, frammi fyrir Drottni vorum Jesú við komu hans?


Þannig styrkir hann hjörtu ykkar svo að þið verðið óaðfinnanleg og heilög í augum Guðs, föður vors, þegar Drottinn vor Jesús kemur ásamt öllum sínum heilögu.


Og Abraham öðlaðist það sem Guð hafði heitið honum er hann hafði beðið þess með stöðuglyndi.


Talið ekki illa hvert um annað, systkin. Sá sem talar illa um bróður sinn eða systur eða dæmir þau, talar illa um lögmálið og dæmir lögmálið. En ef þú dæmir lögmálið þá hlýðir þú ekki lögmálinu heldur ertu dómari þess.


Bræður og systur, takið spámennina til fyrirmyndar sem talað hafa í nafni Drottins og liðið illt með þolinmæði.


gull ykkar og silfur er orðið ryðbrunnið og ryðið á því mun verða ykkur til vitnis og éta hold ykkar eins og eldur. Þið hafið safnað fjársjóðum á síðustu dögum.


og segja með spotti: „Hvað verður úr fyrirheitinu um komu hans? Því að síðan feðurnir sofnuðu stendur allt við hið sama eins og frá upphafi veraldar.“


ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:

ကြော်ငြာတွေ


ကြော်ငြာတွေ