Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -




Jakobsbréfið 5:16 - Biblían (2007)

16 Játið því hvert fyrir öðru syndir ykkar og biðjið hvert fyrir öðru til þess að þið verðið heilbrigð. Kröftug bæn réttláts manns megnar mikið.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ

Biblían (1981)

16 Játið því hver fyrir öðrum syndir yðar og biðjið hver fyrir öðrum, til þess að þér verðið heilbrigðir. Kröftug bæn réttláts manns megnar mikið.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ




Jakobsbréfið 5:16
68 ပူးပေါင်းရင်းမြစ်များ  

Guð minntist Abrahams er hann eyddi borgirnar á sléttlendinu og hann leiddi Lot úr eyðingunni þegar hann eyddi borgirnar sem Lot hafði búið í.


Og Abraham bað til Guðs fyrir Abímelek og Guð læknaði Abímelek, konu hans og ambáttir og gátu þær fætt


Nú skaltu fá manninum aftur konu sína því að hann er spámaður og mun biðja fyrir þér, að þú haldir lífi. En vita skaltu að skilir þú henni ekki aftur muntu deyja og allt sem þitt er.“


Þá mælti hann: „Ekki skaltu lengur heita Jakob heldur Ísrael því að þú hefur glímt við Guð og menn og unnið sigur.“


Þeir höfðu farið yfir á vaðinu til að flytja fjölskyldu konungs yfir og uppfylla óskir hans. Þegar konungur var að leggja af stað yfir Jórdan varpaði Símeí Gerason sér niður frammi fyrir honum


Þá sagði konungur við guðsmanninn: „Milda nú reiði Drottins, Guðs þíns, og bið fyrir mér svo að ég geti dregið að mér höndina.“ Guðsmaðurinn mildaði reiði Drottins svo að konungurinn gat dregið að sér höndina aftur og varð hún jafngóð og áður.


Drottinn bænheyrði Hiskía og hegndi fólkinu ekki.


Takið nú sjö naut og sjö geithafra, farið til Jobs, þjóns míns, og færið brennifórn fyrir yður. Job, þjónn minn, mun biðja fyrir yður. Hans vegna mun ég hlífa yður við smán því að þér sögðuð ekki satt um mig eins og Job, þjónn minn.“


Forðastu illt og gerðu gott, leitaðu friðar og leggðu stund á hann.


Á meðan Móse hélt hendi sinni uppi veitti Ísraelsmönnum betur en þegar hann lét hönd sína síga höfðu Amalekítar betur.


Móse gekk frá faraó og út úr borginni. Hann hóf upp hendur sínar til Drottins; þá þögnuðu þrumurnar, haglinu slotaði og ekki rigndi lengur á jörðina.


Drottinn er fjarlægur ranglátum en bæn réttlátra heyrir hann.


Fórn ranglátra er Drottni andstyggð en bæn réttsýnna er honum þóknanleg.


Daufheyrist maður við lögmálinu verður bæn hans andstyggð.


Drottinn sagði við mig: Þó að Móse og Samúel stæðu fyrir augliti mínu vildi ég ekki skipta mér af þessu fólki. Rektu þá frá augliti mínu, þeir eiga að fara burt.


Hrópaðu til mín! Ég mun bænheyra þig og ég mun kunngjöra þér mikla hluti og leyndardómsfulla sem þú hefur ekki áður þekkt.


og sögðu við Jeremía spámann: „Vér biðjum þig innilega að gera bón vora og biðja til Drottins, Guðs þíns, fyrir oss öllum sem eftir erum. Vér erum aðeins fáir eftir af öllum þeim fjölda sem áður var eins og þú getur séð með eigin augum.


Þá hrópaði fólkið til Móse og Móse bað til Drottins og dvínaði þá eldurinn.


Ef þið trúið munuð þið öðlast allt sem þið biðjið.“


létu hann skíra sig í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar.


og menn streymdu til hans frá allri Júdeubyggð og allir Jerúsalembúar og létu hann skíra sig í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar.


Þeir lögðu af stað og fóru um þorpin, fluttu fagnaðarerindið og læknuðu hvarvetna.


Við vitum að Guð heyrir ekki bænir syndara. Hann bænheyrir hvern þann sem er guðrækinn og fer að Guðs vilja.


Það er sagan um Jesú frá Nasaret, hvernig Guð smurði hann heilögum anda og krafti. Hann gekk um, gerði gott og græddi alla sem djöfullinn undirokaði því að Guð var með honum.


Margir þeirra sem trú höfðu tekið komu, gerðu játningu og sögðu frá athæfi sínu.


Símon sagði: „Biðjið fyrir mér til Drottins að ekkert komi það yfir mig sem þið hafið mælt.“


Eins og ritað er: Enginn er réttlátur, ekki einn,


Allir urðu syndarar vegna óhlýðni eins manns. Eins verða allir lýstir sýknir saka vegna hlýðni hins eina.


Frá þeim degi, er ég heyrði þetta, hef ég því ekki látið af að biðja fyrir ykkur. Ég bið þess að Guð láti anda sinn auðga ykkur að þekkingu á vilja sínum með allri speki og skilningi


En sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.


Fyrir trú bar Abel fram fyrir Guð betri fórn en Kain af því að hann treysti Guði, og fyrir trú fékk hann þann vitnisburð að hann væri réttlátur er Guð bar vitni um fórn hans. Með trú sinni talar hann enn þótt dáinn sé.


Fyrir trú fékk Nói bendingu um það sem enn þá var ekki auðið að sjá. Hann hlýddi Guði og smíðaði örk til þess að bjarga heimilisfólki sínu. Með trú sinni sýndi hann að heimurinn hafði á röngu að standa og varð erfingi réttlætisins af trúnni.


Látið fætur ykkar feta beinar brautir til þess að hið fatlaða vindist ekki úr liði en verði heilt.


Biðjið fyrir mér því að ég er þess fullviss að ég hef góða samvisku og vil í öllum greinum breyta vel.


Á þessum degi, þegar Drottinn framseldi Amoríta fyrir augliti Ísraelsmanna, talaði Jósúa við Drottin og sagði við hann í návist Ísraelsmanna: Sól, statt þú kyrr yfir Gíbeon og þú, tungl, yfir Ajalondal.


Hann bar sjálfur syndir okkar á líkama sínum upp á tréð, til þess að við skyldum deyja frá syndunum og lifa réttlætinu. Fyrir hans benjar eruð þið læknuð.


Og hvað sem við biðjum um fáum við hjá honum af því að við höldum boðorð hans og gerum það sem honum er þóknanlegt.


Hún bað lengi frammi fyrir Drottni og á meðan fylgdist Elí með munni hennar


Stendur ekki hveitiuppskeran yfir núna? Ég ætla að hrópa til Drottins, þá mun hann senda þrumur og rigningu. Þá skiljið þið hve rangt það var af ykkur í augum Drottins að krefjast konungs.“


Síðan hrópaði Samúel til Drottins og Drottinn sendi jafnskjótt þrumur og rigningu. Allt fólkið skelfdist Drottin og Samúel


ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:

ကြော်ငြာတွေ


ကြော်ငြာတွေ