Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -




Jakobsbréfið 4:4 - Biblían (2007)

4 Þið ótrúu, vitið þið ekki að vinátta við heiminn er fjandskapur gegn Guði? Hver sem því vill vera vinur heimsins, hann gerir sig að óvini Guðs.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ

Biblían (1981)

4 Þér ótrúu, vitið þér ekki, að vinátta við heiminn er fjandskapur gegn Guði? Hver sem því vill vera vinur heimsins, hann gjörir sig að óvini Guðs.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ




Jakobsbréfið 4:4
24 ပူးပေါင်းရင်းမြစ်များ  

Ég set fjandskap milli þín og konunnar og milli þíns niðja og hennar niðja. Hann skal merja höfuð þitt og þú skalt höggva hann í hælinn.


Konungurinn treystir Drottni og skelfur ekki vegna náðar Hins hæsta.


Sjáir þú þjóf leggurðu lag þitt við hann og hefur samneyti við hórkarla.


Því sjá, þeir farast sem fjarlægjast þig, þú afmáir alla sem eru þér ótrúir.


En þér, seiðkonusynir, komið hingað, börn hórkarls og skækju.


Far og hrópa til Jerúsalembúa: Svo segir Drottinn: Ég minnist enn æskutryggðar þinnar, kærleika þíns er þú sem brúður fylgdir mér í eyðimörkinni, landi sem enginn getur ræktað.


Þeir spenna tunguna eins og boga, þeir halda völdum í landinu með lygi, ekki með sannleika. Þeir ganga frá einu illvirki til annars en mig þekkja þeir ekki, segir Drottinn.


Kona, sem drýgir hór, tekur annan mann í stað eiginmanns síns.


Drottinn sagði við mig: „Farðu aftur og elskaðu konu sem er elskuð af manni sínum en heldur fram hjá. Elskaðu hana eins og Drottinn elskar Ísraelsmenn þó að þeir snúi sér að öðrum guðum og sækist eftir rúsínukökum.“


Jesús svaraði þeim: „Vond og ótrú kynslóð heimtar tákn en eigi verður henni annað tákn gefið en tákn Jónasar spámanns.


Vond og ótrú kynslóð heimtar tákn en eigi verður henni annað tákn gefið en tákn Jónasar.“ Síðan skildi hann við þá og fór.


Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón.


En færið hingað þessa óvini mína, sem vildu ekki að ég yrði konungur yfir sér, og höggvið þá frammi fyrir mér.“


Væruð þér af heiminum mundi heimurinn elska sína. Heimurinn hatar yður af því að þér eruð ekki af heiminum heldur hef ég útvalið yður úr heiminum.


Ég hef gefið þeim orð þitt og heimurinn hataði þá af því að þeir eru ekki af heiminum, eins og ég er ekki af heiminum.


Heimurinn getur ekki hatað ykkur. Mig hatar hann af því ég vitna um að verk hans séu vond.


Hafi Guð, þegar við vorum óvinir hans, tekið okkur í sátt með dauða sonar síns, mun hann því fremur nú, þegar hann hefur sætt okkur við sig, frelsa okkur með lífi hans.


Sjálfshyggjan er fjandsamleg Guði og lýtur ekki lögmáli Guðs, enda getur hún það ekki.


Hvar er vitringur? Hvar fræðimaður, orðkappi þessa heims? Er ekki það sem heimurinn telur speki heimska í augum Guðs?


Enda þótt speki Guðs sé í heiminum gátu mennirnir ekki þekkt Guð með sinni speki. Þess vegna ákvað Guð að boða það sem er heimska í augum manna og frelsa þá sem trúa.


Er ég nú að reyna að sannfæra menn eða Guð? Er ég að leitast við að þóknast mönnum? Ef ég væri enn að þóknast mönnum þá væri ég ekki þjónn Krists.


Hrein og flekklaus guðrækni fyrir Guði föður er að vitja munaðarlausra og ekkna í þrengingum þeirra og varðveita sjálfan sig óflekkaðan af heiminum.


ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:

ကြော်ငြာတွေ


ကြော်ငြာတွေ