Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -




Jakobsbréfið 4:1 - Biblían (2007)

1 Af hverju koma stríð og af hverju sennur meðal ykkar? Af hverju öðru en girndum ykkar sem heyja stríð í limum ykkar?

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ

Biblían (1981)

1 Af hverju koma stríð og af hverju sennur meðal yðar? Af hverju öðru en girndum yðar, sem heyja stríð í limum yðar?

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ




Jakobsbréfið 4:1
24 ပူးပေါင်းရင်းမြစ်များ  

Svikult er hjartað framar öllu öðru og forhert. Hver skilur það?


Því að frá hjartanu koma illar hugsanir, manndráp, hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður, ljúgvitni, lastmælgi.


Þér eigið djöfulinn að föður og viljið gera það sem faðir yðar girnist. Hann var manndrápari frá upphafi og hefur aldrei þekkt sannleikann því í honum finnst enginn sannleikur. Þegar hann lýgur fer hann að eðli sínu því hann er lygari og lyginnar faðir.


en ég sé annað lögmál í limum mínum og það stríðir gegn lögmáli hugar míns, hertekur mig undir lögmál syndarinnar í limum mínum.


Þegar við lutum okkar spillta eðli voru syndugar ástríður, vaktar af lögmálinu, virkar í limum okkar svo að við bárum dauðanum ávöxt.


Sjálfshyggjan er fjandsamleg Guði og lýtur ekki lögmáli Guðs, enda getur hún það ekki.


Holdið girnist gegn andanum og andinn gegn holdinu. Þau standa hvort gegn öðru til þess að þið gerið ekki það sem þið viljið.


Deyðið því hið jarðbundna í fari ykkar: hórdóm, saurlifnað, losta, vonda fýsn og ágirnd sem ekki er annað en skurðgoðadýrkun.


En hafna þú heimskulegum og einskis nýtum þrætum. Þú veist að þær leiða af sér ófrið.


Því að þeir voru tímarnir að við vorum einnig óskynsöm, óhlýðin, villuráfandi, í ánauð hvers konar fýsna og lostasemda. Við ólum aldur okkar í illsku og öfund, vorum andstyggileg, hötuðum hvert annað.


En forðast þú heimskulegar þrætur og ættartölur, deilur og lögmálsstælur. Þær eru gagnslausar og til einskis.


Það er eigin girnd sem freistar sérhvers manns og dregur hann og tælir.


Þið biðjið og öðlist ekki af því að þið biðjið illa, þið viljið sóa því í munaði.


Verið eins og hlýðin börn og látið líferni ykkar ekki framar mótast af þeim girndum er þið áður létuð stjórnast af í vanvisku ykkar.


Þið elskuðu, ég áminni ykkur sem gesti og útlendinga að halda ykkur frá holdlegum girndum sem heyja stríð gegn sálunni.


Þeir láta klingja innantóm diguryrði og tæla með holdlegum girndum og svívirðilegum lifnaði þá sem eru í þann veginn að sleppa frá þeim sem ganga í villu.


Þetta skuluð þið þá fyrst vita, að á síðustu dögum munu koma spottarar er stjórnast af eigin girndum


ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:

ကြော်ငြာတွေ


ကြော်ငြာတွေ