Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -




Jakobsbréfið 2:23 - Biblían (2007)

23 Og ritningin rættist sem segir: „Abraham trúði Guði og það var honum til réttlætis reiknað,“ og hann var kallaður vinur Guðs.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ

Biblían (1981)

23 Og ritningin rættist, sem segir: “Abraham trúði Guði, og það var honum til réttlætis reiknað,” og hann var kallaður Guðs vinur.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ




Jakobsbréfið 2:23
22 ပူးပေါင်းရင်းမြစ်များ  

Og Abram trúði Drottni og hann reiknaði honum það til réttlætis.


Asarja Natansson var yfirmaður héraðsstjóranna; Sabúð Natansson prestur var vinur konungs.


Sviptir þú, Guð vor, ekki fyrri íbúa þessa lands landi sínu vegna lýðs þíns, Ísraels? Gafstu það ekki niðjum Abrahams, vinar þíns, til ævinlegrar eignar?


hann skeri úr deilum milli manns og Guðs og manna á meðal


Drottinn talaði við Móse augliti til auglitis, eins og maður talar við mann. Því næst sneri Móse aftur til búðanna en þjónn hans, unglingurinn Jósúa Núnsson, vék ekki úr tjaldinu.


En þú, Ísrael, þjónn minn, Jakob, sem ég hef útvalið, niðji Abrahams, vinar míns.


Hafið þið eigi lesið þessa ritningu: Steinninn sem smiðirnir höfnuðu er orðinn að hyrningarsteini.


Með honum krossfestu þeir tvo ræningja, annan til hægri handar honum en hinn til vinstri. [


Hann tók þá að tala til þeirra: „Í dag hefur ræst þessi ritning í áheyrn yðar.“


„Systkin, rætast hlaut það sem heilagur andi sagði fyrir munn Davíðs í Heilagri ritningu um Júdas sem vísaði leið þeim er tóku Jesú höndum.


Guð hefur ekki útskúfað lýð sínum sem hann þekkti fyrir fram. Ég minni á það sem Ritningin segir í kaflanum um Elía, hvernig hann kemur fram fyrir Guð með kæru á hendur Ísrael:


Því er í ritningunni sagt við faraó: „Einmitt til þess hóf ég þig að ég fengi sýnt mátt minn á þér og nafn mitt yrði boðað um alla jörðina.“


En Ritningin segir að allt sé hneppt undir vald syndarinnar til þess að trúuðum veitist fyrirheitið með því að treysta því sem Guð lét Jesú Krist gera.


Svo var og um Abraham, „hann trúði Guði og það var honum til réttlætis reiknað“.


Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, umvöndunar, leiðréttingar og menntunar í réttlæti


Þið sjáið að maðurinn réttlætist af verkum en ekki af trúnni einni saman.


Því að svo stendur í Ritningunni: Sjá, ég set hornstein í Síon, valinn og dýrmætan. Sá sem trúir á hann mun alls eigi verða til skammar.


ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:

ကြော်ငြာတွေ


ကြော်ငြာတွေ