Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -




Jakobsbréfið 2:19 - Biblían (2007)

19 Þú trúir að Guð sé einn. Þú gerir vel. En illu andarnir trúa því líka og skelfast.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ

Biblían (1981)

19 Þú trúir, að Guð sé einn. Þú gjörir vel. En illu andarnir trúa því líka og skelfast.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ




Jakobsbréfið 2:19
31 ပူးပေါင်းရင်းမြစ်များ  

Þér eruð vottar mínir, segir Drottinn, þjónn minn sem ég hef útvalið svo að þér vitið og trúið mér. Skiljið að ég er hann. Enginn guð var myndaður á undan mér og eftir mig verður enginn til.


Svo segir Drottinn, konungur Ísraels, lausnarinn, Drottinn allsherjar: Ég er hinn fyrsti og ég er hinn síðasti. Enginn Guð er nema ég.


Skelfist ekki og látið ekki hugfallast. Lét ég yður ekki heyra þetta, boðaði það frá öndverðu? Þér eruð vitni mín. Er nokkur annar Guð en ég? Enginn annar klettur er til það ég veit.


svo að bæði í austri og vestri skilji menn að enginn er Guð nema ég.


Minnist þess sem áður var frá öndverðu. Ég er Guð og enginn annar, enginn er sem ég.


Drottinn svaraði: „Gerir þú rétt er þú reiðist?“


Guð sagði þá við Jónas: „Hyggurðu að þú reiðist með réttu vegna rísínusrunnans?“ Hann svaraði: „Ég geri rétt er ég reiðist til dauða.“


Drottinn mun þá verða konungur yfir veröldinni allri. Á þeim degi mun Drottinn verða einn og nafn hans eitt.


Þeir æpa: „Hvað vilt þú okkur, sonur Guðs? Komstu hingað að kvelja okkur fyrir tímann?“


„Hvað vilt þú okkur, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma okkur? Ég veit hver þú ert, hinn heilagi Guðs.“


Jesús svaraði: „Æðst er þetta: Heyr, Ísrael! Drottinn, Guð vor, hann einn er Drottinn.


og æpti hárri röddu: „Hvað vilt þú mér, Jesús, sonur Guðs Hins hæsta? Ég bið þig í Guðs nafni, kvel þú mig eigi!“


Enn sagði Jesús við þá: „Listavel gerið þið að engu boðorð Guðs svo þið getið rækt erfikenning ykkar.


„Hvað vilt þú okkur, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma okkur? Ég veit hver þú ert, hinn heilagi Guðs.“


En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist.


Hún elti Pál og okkur og hrópaði: „Menn þessir eru þjónar Guðs hins hæsta og boða þeir ykkur veg til hjálpræðis!“


En illi andinn sagði við þá: „Jesú þekki ég og Pál kannast ég við en hverjir eruð þið?“


En er hann ræddi um réttlæti, sjálfsögun og komandi dóm varð Felix skelkaður og mælti: „Far burt að sinni. Ég læt kalla þig þegar ég fæ tóm til.“


Jú, líka heiðingja, svo sannarlega sem Guð er einn og réttlætir jafnt umskorna menn af trú og óumskorna fyrir sömu trú.


En hvað varðar neyslu kjöts, sem fórnað hefur verið skurðgoðum, þá vitum við að skurðgoð er ekkert í heiminum og að enginn er Guð nema einn.


þá höfum við ekki nema einn Guð, föðurinn, sem skapað hefur alla hluti og líf okkar stefnir til, og einn Drottin, Jesú Krist, sem allt varð til fyrir og við fyrir hann.


En meðalgangara gerist ekki þörf þar sem einn á í hlut en Guð er einn.


Heyr, Ísrael. Drottinn, Guð vor, Drottinn er einn.


Einn er Guð. Einn er og meðalgangarinn milli Guðs og manna, maðurinn Kristur Jesús


Ef þið uppfyllið hið konunglega boðorð Ritningarinnar: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig,“ þá gerið þið vel.


Nokkrir menn hafa laumast inn í söfnuðinn. Það eru óguðlegir menn sem misnota náð Guðs okkar til taumleysis og afneita okkar eina lávarði og Drottni, Jesú Kristi. Fyrir löngu var ritað um þann dóm sem biði þeirra.


Minnist englanna sem ekki gættu tignar sinnar heldur yfirgáfu eigin bústað. Guð hefur geymt þá í myrkri í ævarandi fjötrum til dómsins á deginum mikla.


Og djöflinum, sem leiðir þær afvega, var kastað í díkið elds og brennisteins, þar sem bæði dýrið og falsspámaðurinn eru. Þau verða kvalin dag og nótt um aldir alda.


ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:

ကြော်ငြာတွေ


ကြော်ငြာတွေ