Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -




Jakobsbréfið 2:14 - Biblían (2007)

14 Hvað stoðar það, bræður mínir og systur, þótt einhver segist hafa trú en sýnir það eigi í verki? Mun trúin geta frelsað hann?

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ

Biblían (1981)

14 Hvað stoðar það, bræður mínir, þótt einhver segist hafa trú, en hefur eigi verk? Mun trúin geta frelsað hann?

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ




Jakobsbréfið 2:14
31 ပူးပေါင်းရင်းမြစ်များ  

En þér treystið gagnslausum lygaræðum, lognum boðskap sem er gagnslaus.


Ég segi yður: Ef réttlæti yðar ber ekki af réttlæti fræðimanna og farísea komist þér aldrei í himnaríki.


En hann svaraði þeim: „Sá sem á tvo kyrtla gefi þeim er engan á og eins geri sá er matföng hefur.“


Hinn, er heyrir það sem ég segi og breytir ekki eftir því, er líkur manni sem byggði hús á jörðinni án undirstöðu. Flaumurinn skall á því og það hús féll þegar og fall þess varð mikið.“


Engan mun gerði hann á okkur og þeim er hann hreinsaði hjörtu þeirra með trúnni.


Meira að segja Símon tók trú. Hann var skírður og gerðist mjög fylgisamur Filippusi. Og er hann sá tákn og mikil kraftaverk gerast var hann frá sér numinn.


Þú átt hvorki skerf né hlut í þessu því að þú ert ekki einlægur í hjarta þínu gagnvart Guði.


Umskurn kemur því aðeins að gagni að þú haldir lögmálið. En ef þú brýtur gegn því er umskurn þín orðin að engu.


Það mun og frelsa ykkur ef þið haldið fast við það sem ég boðaði ykkur, ella hafið þið til einskis tekið trú.


Ef einhver elskar ekki Drottin, sé hann bölvaður. Marana þa!


Bræður og systur, þið voruð kölluð til að vera frjáls. Misnotið ekki frelsið í þágu eigin girnda heldur þjónið hvert öðru í kærleika.


Í samfélaginu við Krist Jesú gildir hvorki umskurn né yfirhúð heldur trú sem verkar í kærleika.


Ég minnist stöðugt fyrir augliti Guðs vors og föður hve mikið þið starfið í trúnni, stríðið í kærleikanum og eruð staðföst í voninni á Drottin vorn Jesú Krist.


Markmið fræðslunnar er að vekja kærleika af hreinu hjarta, góðri samvisku og hræsnislausri trú.


Líkamleg æfing er nytsamleg í sumu en guðræknin er til allra hluta nytsamleg og gefur fyrirheit bæði fyrir þetta líf og hið komanda.


Þeir segjast þekkja Guð en afneita honum með verkum sínum. Þeir eru viðbjóðslegir og óhlýðnir, óhæfir til hvers góðs verks.


Það orð er satt, og á þetta vil ég að þú leggir alla áherslu til þess að þau sem fest hafa trú á Guð láti sér umhugað um að stunda góð verk. Þetta er gott og mönnum nytsamlegt.


Fyrir trú fórnfærði Abraham Ísak er hann var reyndur. Og Abraham, sem fengið hafði fyrirheitin, var reiðubúinn að fórnfæra einkasyni sínum.


Látið ekki ýmiss konar framandi kenningar afvegaleiða ykkur. Látið náð Guðs næra hjartað, ekki mat af ýmsu tagi. Þeir sem sinntu slíku höfðu eigi happ af því.


og eitthvert ykkar segði við þau: „Farið í friði, vermið ykkur og mettið!“ en þið gefið þeim ekki það sem líkaminn þarfnast, hvað stoðar það?


En nú segir einhver: „Einn hefur trú, annar verkin.“ Sýn mér þá trú þína án verkanna og ég skal sýna þér trúna af verkum mínum.


Eins og líkaminn er dauður án anda, eins er og trúin dauð án verka.


Leggið þess vegna alla stund á að sýna í trú ykkar dygð og í dygðinni þekkingu,


ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:

ကြော်ငြာတွေ


ကြော်ငြာတွေ