Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -




Jakobsbréfið 1:19 - Biblían (2007)

19 Vitið þetta, elskuð systkin. Hver maður skal vera fljótur til að heyra, seinn til að tala, seinn til reiði.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ

Biblían (1981)

19 Vitið, bræður mínir elskaðir: Hver maður skal vera fljótur til að heyra, seinn til að tala, seinn til reiði.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ




Jakobsbréfið 1:19
54 ပူးပေါင်းရင်းမြစ်များ  

og Esra las daglega upp úr lögmálsbók Guðs, frá fyrsta degi til hins síðasta. Hátíðin stóð í sjö daga. Á áttunda degi var hátíðarsamkoma eins og fyrirskipað var.


Þeir vildu ekki hlýða og minntust ekki máttarverka þinna sem þú vannst fyrir þá. Þeir þverskölluðust og einsettu sér að halda aftur í þrælkunina í Egyptalandi. En þú ert Guð sem fyrirgefur, náðugur og miskunnsamur, seinn til reiði og gæskuríkur og þú yfirgafst þá ekki.


og tóku sér stöðu á sínum stað. Fjórðung dagsins var lesið úr lögmálsbók Drottins, Guðs þeirra, og annan fjórðung játuðu þeir syndir sínar og féllu fram fyrir Drottni, Guði sínum.


Á ég þá að bíða meðan þeir þegja því að þeir standa þarna og geta engu svarað?


Málæðinu fylgja yfirsjónir en sá breytir hyggilega sem hefur taumhald á tungu sinni.


Sá sem gætir munns síns varðveitir líf sitt en glötun bíður hins lausmála.


Uppstökkan mann henda glöp en hinn meinfýsni verður hataður.


Sá sem er seinn til reiði er skynsamur en hinn bráðláti setur heimskuna í hásæti.


Bráðlyndur maður vekur deilur en sá sem seinn er til reiði stillir þrætur.


Af tungu hinna vitru drýpur þekking, af munni heimskingjanna streymir flónskan.


Sá sem er seinn til reiði er betri en kappi og sá sem stjórnar geði sínu er meiri en sá sem vinnur borgir.


Þegar deila kviknar er sem tekin sé úr stífla, láttu hana því niður falla áður en sennan hefst.


Hygginn maður er orðvar og skynsamur maður er fáorður.


Svari einhver áður en hann hlustar er það heimska hans og skömm.


Dauði og líf eru á valdi tungunnar, sá sem henni beitir mun og þiggja ávöxt hennar.


Það er viska að vera seinn til reiði og sæmd að láta rangsleitni ekki á sig fá.


Hinn skapbráði mun hljóta refsingu, reynir þú að bjarga honum gerir þú illt verra.


Sá sem gætir munns síns og tungu forðar sjálfum sér frá nauðum.


Eins og opin borg án borgarmúra, svo er sá maður sem ekki hefur stjórn á skapi sínu.


Sjáir þú mann sem er fljótfær í orðum, þá á heimskinginn meiri von en hann.


Þegar asnan sá engil Drottins lagðist hún niður undir Bíleam sem reiddist og sló ösnuna með staf.


En ég segi yður: Hver sem reiðist bróður sínum skal svara til saka fyrir dómi. Sá sem hrakyrðir bróður sinn skal svara til saka fyrir ráðinu og hver sem svívirðir hann hefur unnið til eldsvítis.


Davíð kallar hann sjálfur drottin. Hvernig getur hann þá verið sonur hans?“ Og hinn mikli mannfjöldi hlýddi fúslega á hann.


söfnuðust þar svo margir að hvergi var lengur rúm, ekki einu sinni fyrir dyrum úti. Og Jesús flutti þeim orðið.


Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann


en fundu eigi hvað gera skyldi því að allt fólkið vildi ákaft hlýða á hann.


Á þessum dögum stóð Pétur upp meðal lærisveinanna. Þar var saman kominn flokkur manna, um eitt hundrað og tuttugu að tölu. Hann mælti:


Því sendi ég jafnskjótt til þín og vel gerðir þú að koma. Nú erum við öll hér saman frammi fyrir Guði til að heyra allt sem Drottinn hefur boðið þér.“


En þegar heiðingjar heyrðu þetta glöddust þeir og vegsömuðu orð Guðs og allir þeir sem ætlaðir voru til eilífs lífs tóku trú.


Þeir voru veglyndari þar en í Þessaloníku. Þeir tóku við orðinu með mesta áhuga og rannsökuðu daglega ritningarnar, hvort þessu væri þannig farið.


Þau ræktu trúlega uppfræðslu postulanna og samfélagið, brotning brauðsins og bænirnar.


Ef þið reiðist þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði ykkar.


Látið hvers konar beiskju, ofsa, reiði, hávaða og lastmæli vera fjarlægt ykkur og alla mannvonsku yfirleitt.


Látið frið Krists ríkja í hjörtum ykkar því að Guð kallaði ykkur til að lifa saman í friði sem limi í einum líkama. Verið þakklát.


En nú skuluð þið segja skilið við allt þetta: reiði, bræði, vonsku, lastmæli, svívirðilegt orðbragð.


Og þess vegna þakka ég líka Guði án afláts því að þegar þið veittuð viðtöku orði Guðs, sem ég boðaði, þá tókuð þið ekki við því sem manna orði heldur sem Guðs orði − eins og það í sannleika er og það sýnir kraft sinn í ykkur sem trúið.


Kæri söfnuður, álítið það mesta fagnaðarefni er þið ratið í ýmiss konar raunir.


Sá sem þykist vera guðrækinn en hefur ekki taumhald á tungu sinni blekkir sjálfan sig og guðrækni hans er fánýt.


Bræður mínir og systur, þið sem trúið á Jesú Krist, dýrðardrottin okkar, farið ekki í manngreinarálit.


Heyrið, elskuð systkin. Hefur Guð ekki útvalið þá sem eru fátækir í augum heimsins til þess að þeir verði auðugir í trú og erfi ríkið er hann hefur heitið þeim sem elska hann?


Af sama munni gengur fram blessun og bölvun. Þetta má ekki svo vera, bræður mínir og systur.


Talið ekki illa hvert um annað, systkin. Sá sem talar illa um bróður sinn eða systur eða dæmir þau, talar illa um lögmálið og dæmir lögmálið. En ef þú dæmir lögmálið þá hlýðir þú ekki lögmálinu heldur ertu dómari þess.


En umfram allt, bræður mínir og systur, sverjið ekki, hvorki við himininn né við jörðina né nokkurn annan eið. En já ykkar sé já, nei ykkar sé nei, svo að Guð dæmi ykkur ekki.


Bræður mínir og systur, ef einhver meðal ykkar villist frá sannleikanum og einhver snýr honum aftur,


Ég hef ekki skrifað ykkur vegna þess að þið þekkið ekki sannleikann heldur af því að þið þekkið hann og af því að engin lygi getur komið frá sannleikanum.


ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:

ကြော်ငြာတွေ


ကြော်ငြာတွေ