Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -




Jakobsbréfið 1:12 - Biblían (2007)

12 Sæll er sá maður sem stenst freistingu og reynist hæfur. Guð mun veita honum kórónu lífsins sem hann hefur heitið þeim er elska hann.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ

Biblían (1981)

12 Sæll er sá maður, sem stenst freistingu, því að þegar hann hefur reynst hæfur mun hann öðlast kórónu lífsins, sem Guð hefur heitið þeim er elska hann.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ




Jakobsbréfið 1:12
49 ပူးပေါင်းရင်းမြစ်များ  

Eftir þessa atburði reyndi Guð Abraham. Hann mælti til hans: „Abraham.“ Og hann svaraði: „Hér er ég.“


Ég bað: „Drottinn, Guð himinsins. Þú mikli og ógnvekjandi Guð. Þú heldur sáttmálann og sýnir þeim miskunnsemi sem elska þig og halda boð þín.


Hann svaraði henni: „Þú talar eins og fávís kona. Ættum við að þiggja það sem er gott frá Guði en ekki það sem er illt?“ Þrátt fyrir allt þetta syndgaði Job ekki með vörum sínum.


Sæll er sá sem Guð leiðbeinir, sá sem hafnar ekki ögun Hins almáttka


Drottinn reynir réttlátan og ranglátan, hann hatar þann sem elskar ofríki.


Áður en ég varð auðmjúkur villtist ég en nú varðveiti ég orð þitt.


Það varð mér til góðs að ég var beygður svo að ég gæti lært lög þín.


Ég veit, Drottinn, að dómar þínir eru réttlátir, að þú auðmýktir mig í trúfesti þinni.


Guð, dæm þá seka og lát þá falla á eigin bragði. Hrek þá burt sakir hinna mörgu afbrota þeirra því að þeir hafa risið gegn þér.


Sæll er sá maður er þú agar, Drottinn, og fræðir með lögmáli þínu


en sýni kærleika þúsundum þeirra sem elska mig og halda boð mín.


Deiglan er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyrir gullið en Drottinn prófar hjörtun.


Þú kemur til móts við þá sem ástunda réttlæti, minnast vega þinna. En þú reiddist því að vér syndguðum, risum gegn þér frá fyrstu tíð


Þann þriðjung leiði ég gegnum eldinn, hreinsa hann eins og menn hreinsa silfur og prófa hann eins og gull er prófað. Hann mun ákalla nafn mitt og ég mun svara og segja: „Þetta er lýður minn,“ og hann mun segja: „Drottinn er Guð minn.“


Allir munu hata yður af því að þér trúið á mig. En sá sem staðfastur er allt til enda mun frelsast.


Og þá mun konungurinn segja við þá til hægri: Komið þér, sem faðir minn á og blessar, og takið við ríkinu sem yður var ætlað frá grundvöllun heims.


Sælir eruð þér þá er menn hata yður, þá er þeir útskúfa yður og smána og bera út óhróður um yður vegna Mannssonarins.


veitir þolgæði en þolgæði gerir mann fullreyndan og fullreyndur á vonina.


Við vitum að þeim sem Guð elska samverkar allt til góðs, þeim sem hann hefur kallað samkvæmt ákvörðun sinni.


En það er eins og ritað er: Það sem auga sá ekki og eyra heyrði ekki og ekki kom upp í hjarta nokkurs manns, það allt hefur Guð fyrirbúið þeim er hann elska.


Sérhver sem tekur þátt í kappleikjum leggur hart að sér. Þeir sem keppa gera það til þess að hljóta forgengilegan sigursveig en við óforgengilegan.


og táknið eða undrið rætist og hann segir: „Við skulum fylgja öðrum guðum en þeim sem þið hafið þekkt áður og við skulum þjóna þeim,“


Vita skaltu: Drottinn, Guð þinn, hann einn er Guð, hinn trúfasti Guð sem heldur sáttmálann og veitir þeim heill í þúsund ættliði sem elska hann og halda boðorð hans.


Hafðu hugfast hvernig Drottinn, Guð þinn, leiddi þig alla leiðina þessi fjörutíu ár í eyðimörkinni. Hann gerði það til að beygja þig og reyna þig, til þess að komast að raun um hvað þú hafðir í huga, hvort þú hygðist halda boðorð hans.


Legg kapp á að standast fyrir Guði sem verkamaður er ekki þarf að skammast sín og fer rétt með orð sannleikans.


Og nú er mér geymdur sveigur réttlætisins sem Drottinn, hinn réttláti dómari, mun gefa mér á þeim degi. Og ekki einungis mér heldur og öllum sem þráð hafa endurkomu hans.


Minnist fyrri daga, er þið höfðuð tekið á móti ljósinu, hvernig þið stóðust miklar þrengingar.


Fyrir trú fórnfærði Abraham Ísak er hann var reyndur. Og Abraham, sem fengið hafði fyrirheitin, var reiðubúinn að fórnfæra einkasyni sínum.


Hafið þið gleymt hvernig Guð hvetur ykkur eins og börn sín: Barnið mitt, lítilsvirð ekki aga Drottins og lát ekki heldur hugfallast er hann tyftar þig.


Og Abraham öðlaðist það sem Guð hafði heitið honum er hann hafði beðið þess með stöðuglyndi.


Heyrið, elskuð systkin. Hefur Guð ekki útvalið þá sem eru fátækir í augum heimsins til þess að þeir verði auðugir í trú og erfi ríkið er hann hefur heitið þeim sem elska hann?


Því við teljum þá sæla sem þolgóðir hafa verið. Þið hafið heyrt um þolgæði Jobs og vitið hvaða lyktir Drottinn gerði á högum hans. Drottinn er mjög miskunnsamur og líknsamur.


En þótt þið skylduð líða illt fyrir að gera það sem er rétt, þá eruð þið sæl. Hræðist eigi og skelfist eigi fyrir neinum.


Gleðjist heldur er þið takið þátt í píslum Krists til þess að þið megið einnig gleðjast og fyllast fögnuði þegar dýrð hans birtist.


Sæl eruð þið þegar menn smána ykkur vegna nafns Krists. Andi dýrðarinnar, andi Guðs, hvílir þá yfir ykkur.


En er þið hafið þjáðst um lítinn tíma mun Guð, sem veitir alla náð og hefur í Kristi kallað ykkur til sinnar eilífu dýrðar, sjálfur fullkomna ykkur, styrkja og gera ykkur öflug.


Þegar hinn æðsti hirðir birtist munuð þið öðlast þann dýrðarsveig sem aldrei fölnar.


Við elskum því að Guð elskaði okkur að fyrra bragði.


Kvíð þú ekki því sem þú átt að líða. Djöfullinn mun varpa nokkrum yðar í fangelsi til þess að reyna yður og þér munuð þola þrengingu í tíu daga. Vertu trúr allt til dauða og ég mun gefa þér kórónu lífsins.


Ég tyfta og aga alla þá sem ég elska. Legg þú því allt kapp á að bæta ráð þitt.


Þann er sigrar mun ég láta sitja hjá mér í hásæti mínu eins og ég sjálfur sigraði og settist hjá föður mínum í hásæti hans.


ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:

ကြော်ငြာတွေ


ကြော်ငြာတွေ