Gerið kunnugt og leggið það fyrir, já, ráðgist hver við annan: Hver boðaði þetta frá öndverðu, skýrði frá því fyrir löngu? Var það ekki ég, Drottinn? Því að enginn er Guð nema ég, réttlátur Guð og frelsari er enginn nema ég.
Að endingu bið ég ykkur, bræður og systur, og hvet ykkur í Drottni Jesú til að breyta eins og þið hafið numið af mér og þóknast Guði eins og þið reyndar gerið. En takið enn meiri framförum.
En ef einhver ekkja á börn eða barnabörn, þá læri þau fyrst og fremst að sýna rækt eigin heimili og endurgjalda foreldrum sínum því að það er Guði þóknanlegt.
Hann hefur frelsað okkur og kallað heilagri köllun, ekki vegna verka okkar heldur eftir eigin ákvörðun og náð sem okkur var gefin frá eilífum tímum í Kristi Jesú
Því að hvað er lofsvert við það að sýna þolgæði er þið sætið barsmíðum fyrir afbrot? En að þola illt með þolgæði og hafa þó breytt vel, það er mikilsvert í augum Guðs.
Látið sjálf uppbyggjast sem lifandi steinar í andlegt hús til heilags prestdóms, til að bera fram andlegar fórnir fyrir Jesú Krist, Guði velþóknanlegar.