Biblia Todo Logo
Bìoball air-loidhne

- Sanasan -

Sakaría 1 - Biblían (1981)


Fyrri hluti

1 Á áttunda mánuði annars ríkisárs Daríusar kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:

2 Drottinn var stórreiður feðrum yðar.

3 Seg því við þá: Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður til mín - segir Drottinn allsherjar - þá mun ég snúa mér til yðar - segir Drottinn allsherjar.

4 Verið ekki eins og feður yðar, sem hinir fyrri spámenn áminntu með svofelldum orðum: “Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður frá yðar vondu breytni og frá yðar vondu verkum!” En þeir hlýddu ekki og gáfu engan gaum að mér - segir Drottinn.

5 Feður yðar - hvar eru þeir? Og spámennirnir - geta þeir lifað eilíflega?

6 En orð mín og ályktanir, þau er ég bauð þjónum mínum, spámönnunum, að kunngjöra, hafa þau ekki náð feðrum yðar, svo að þeir sneru við og sögðu: “Eins og Drottinn allsherjar hafði ásett sér að gjöra við oss eftir breytni vorri og verkum vorum, svo hefir hann við oss gjört”?


Fyrsta sýn: Rauður hestur

7 Á tuttugasta og fjórða degi hins ellefta mánaðar, það er mánaðarins sebat, á öðru ríkisári Daríusar, kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:

8 Ég sá sýn á náttarþeli: mann ríðandi á rauðum hesti, og hafði hann staðnæmst meðal mýrtustrjánna, sem eru í dalverpinu. Að baki honum voru rauðir, jarpir og hvítir hestar.

9 Og er ég spurði: “Hverjir eru þessir, herra minn?” svaraði engillinn mér, sá er við mig talaði: “Ég skal sýna þér, hverjir þeir eru.”

10 Þá tók maðurinn, sem staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, til máls og sagði: “Þessir eru þeir, sem Drottinn hefir sent til þess að fara um jörðina.”

11 Þá svöruðu þeir engli Drottins, er staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, og sögðu: “Vér höfum farið um jörðina, og sjá, öll jörðin er í ró og kyrrð.”

12 Þá svaraði engill Drottins og sagði: “Drottinn allsherjar, hversu lengi á því fram að fara, að þú miskunnir þig ekki yfir Jerúsalem og Júdaborgir, er þú hefir nú reiður verið í sjötíu ár?”

13 Þá svaraði Drottinn englinum, er við mig talaði, blíðum orðum og huggunarríkum,

14 og engillinn sem við mig talaði, sagði við mig: “Kunngjör og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég brenn af mikilli vandlæting vegna Jerúsalem og Síonar

15 og ég er stórreiður hinum andvaralausu heiðingjum, sem juku á bölið, þá er ég var lítið eitt reiður.

16 Fyrir því segir Drottinn svo: Ég sný mér aftur að Jerúsalem með miskunnsemi. Hús mitt skal verða endurreist í henni - segir Drottinn allsherjar - og mælivaður skal þaninn verða yfir Jerúsalem.

17 Kunngjör enn fremur og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Enn skulu borgir mínar fljóta í gæðum, og enn mun Drottinn hugga Síon og enn útvelja Jerúsalem.”

Icelandic Bible © Icelandic Bible Society, 1981.

Icelandic Bible Society
Lean sinn:



Sanasan