Biblia Todo Logo
Bìoball air-loidhne

- Sanasan -

Prédikarinn 1 - Biblían (2007)


Allt er hégómi

1 Orð prédikarans, sonar Davíðs, konungs í Jerúsalem.

2 Aumasti hégómi, segir prédikarinn, aumasti hégómi, allt er hégómi.

3 Hvaða gagn hefur maðurinn af öllu erfiði sínu sem hann streitist við undir sólinni?

4 Ein kynslóð fer, önnur kemur en jörðin stendur að eilífu.

5 Og sólin rennur upp og sólin gengur undir og hraðar sér aftur til samastaðar síns þar sem hún rennur upp.

6 Vindurinn gengur til suðurs og snýr sér til norðurs, hann snýr sér og snýr sér og hringsnýst á nýjan leik.

7 Allar ár renna í sjóinn en sjórinn fyllist ekki. Þangað sem árnar renna munu þær ávallt renna.

8 Allt er sístritandi, enginn maður fær því með orðum lýst, augað verður aldrei satt af að sjá og eyrað verður aldrei mett af að heyra.

9 Það sem hefur verið mun verða og það sem gerst hefur mun enn gerast og ekkert er nýtt undir sólinni.

10 Sé nokkuð til er um verði sagt: Þetta er nýtt, þá hefur það orðið fyrir löngu, fyrir okkar tíma.

11 Forfeðranna minnast menn ekki og ekki verður afkomenda heldur minnst meðal þeirra sem síðar koma.


Sjálf spekin er hégómi

12 Ég, prédikarinn, var konungur yfir Ísrael í Jerúsalem.

13 Ég kappkostaði að rannsaka og kynna mér til hlítar allt það sem gerist undir himninum. Það er erfið þraut sem Guð hefur íþyngt mönnunum með.

14 Ég hef séð öll verk sem unnin eru undir sólinni og öll voru þau hégómi og eftirsókn eftir vindi.

15 Hið bogna verður ekki rétt og það sem á skortir verður ekki talið.

16 Ég hugsaði með mér: Ég hef aflað mér meiri og víðtækari speki en allir sem ríkt hafa yfir Jerúsalem á undan mér og hjarta mitt hefur ríkulega kynnst speki og þekkingu.

17 Ég lagði allan hug á að þekkja speki og þekkja flónsku og heimsku og komst að raun um að einnig það var að sækjast eftir vindi.

18 Því að mikilli speki fylgir mikið angur og sá sem eykur þekkingu sína eykur kvöl sína.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
Lean sinn:



Sanasan