Jóel 1 - Biblían (2007)1 Orð Drottins sem barst Jóel Petúelssyni: Engisprettuplága 2 Hlustið, öldungar, og hlýðið á þetta, allir sem landið byggið. Hefur nokkuð þessu líkt gerst á ævi yðar eða á dögum forfeðra yðar? 3 Segið börnum yðar frá þessu og segi þau það sínum börnum og börn þeirra komandi kynslóð. 4 Það sem smávargurinn leifði át engisprettan, leifar engisprettunnar át grasvargurinn og leifar grasvargsins át jarðvargurinn. 5 Vaknið, drykkjusvolar, og grátið, hefjið harmakvein, þér víndrykkjumenn. Nú er nýja víninu svipt frá vörum yðar. 6 Voldug þjóð hefur ráðist inn í land mitt, meiri en svo að nokkurri tölu verði á komið, tennur hennar ljónstennur og skoltar hennar sem á ljónynju. 7 Vínviði mínum hefur hún eytt og tætt sundur fíkjutré mín. Hún hefur flett berkinum af þeim og varpað burt, hvítar greinar þeirra blasa við. 8 Kveina þú eins og yngismær, klædd hærusekk, sem harmar unnusta æsku sinnar. 9 Matfórn og dreypifórn eru horfnar úr húsi Drottins og prestarnir, þjónar Drottins, eru harmi slegnir. 10 Engin eru eydd og sorg nístir svörðinn því að kornið er kramið, vínlögurinn þornaður og olían þránuð. 11 Ráðþrota eru bændurnir og vínyrkjarnir harma hlut sinn. Hveitið, byggið, öll uppskeran er þeim glötuð. 12 Skrælnaður er vínviðurinn og visnuð fíkjutrén, granateplatrén, pálmarnir og eplatrén. Visin öll tré merkurinnar og öll gleði horfin mannanna börnum. Hvatt til sinnaskipta og bæna 13 Gyrðist hærusekk og harmið, prestar, hefjið harmakvein, þér þjónar altarisins. Hvílið náttlangt í hærusekk, þjónar Guðs míns. Húsi Guðs yðar er nú synjað um matfórn jafnt sem dreypifórn. 14 Boðið helga föstu, efnið til helgrar samkundu. Stefnið saman öldungunum, já, öllum landsbúum, í húsi Drottins, Guðs yðar, og hrópið til Drottins. 15 Ó, sá dagur! Dagur Drottins nálgast, algjöra eyðingu færir hann frá Hinum almáttka. 16 Er fæðunni ekki svipt burt fyrir augum vorum og fögnuði og gleði úr húsi Guðs vors? 17 Fræið er skrælnað undir leirkökkum, forðabúr standa auð og hlöður niðurníddar því að kornið er skrælnað. 18 Ó, hve dýrin barma sér. Nautgripirnir rása stefnulaust og finna sér hvergi haga, sömu nauð þolir sauðféð. 19 Til þín, Drottinn, kalla ég. Eldur hefur sviðið hagaspildur öræfanna og bálið eytt skógum merkurinnar. 20 Jafnvel dýr merkurinnar beina til þín kveinstöfum sínum. Farvegir lækjanna eru þornaðir og eldurinn hefur sviðið burt hagaspildur öræfanna. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society