Harmljóðin 1 - Biblían (2007)Harmar Jerúsalem 1 Ó, hversu einmana er nú borgin sem áður var svo mannmörg, orðin eins og ekkja, sú er voldug var meðal þjóðanna, drottningin meðal héraðanna orðin kvaðarkona. 2 Hún grætur sáran um nætur og tárin streyma ofan vanga hennar. Af öllum ástmönnum hennar er enginn til að hugga hana. Allir vinir hennar brugðust henni, þeir eru orðnir óvinir hennar. 3 Eftir neyð og þunga ánauð er Júda útlægur orðinn. Hann dvelst meðal heiðingjanna og finnur engan hvíldarstað. Allir ofsækjendur hans eltu hann uppi í þrengingum hans. 4 Vegirnir til Síonar syrgja því að engir koma til hátíðanna. Öll hlið hennar eru auð, prestar hennar andvarpa, meyjar hennar eru harmþrungnar og sjálf er hún angistarfull. 5 Fjandmenn hennar hrósa sigri, óvinir hennar hlakka yfir hlut sínum. Því að Drottinn þjakaði hana vegna hennar mörgu synda, börn hennar voru herleidd, rekin á undan óvininum. 6 Frá dótturinni Síon er allt skart horfið. Höfðingjar hennar eru eins og hirtir sem ekkert haglendi finna, magnþrota flýðu þeir undan ofsækjandanum. 7 Á dögum eymdar sinnar og hraknings minnist Jerúsalem allra kjörgripa sinna er hún átti forðum daga. Þegar þjóð hennar féll í hendur kúgarans og enginn hjálpaði henni horfðu óvinirnir á hana og hlökkuðu yfir hrakförum hennar. 8 Jerúsalem syndgaði stórlega, sökum þess varð hún að viðurstyggð. Allir þeir er dáðu hana fyrirlíta hana af því að þeir hafa séð nekt hennar. Sjálf andvarpar hún og snýr sér undan. 9 Saurugleiki hennar loðir við klæðafald hennar, hún leiddi ekki hugann að því sem hennar beið. Hún féll undradjúpt, enginn varð til að hugga hana. Lít, Drottinn, á eymd mína því að óvinirnir hrósa sigri. 10 Óvinurinn rétti út hönd sína, seildist eftir dýrgripum hennar. Hún sá að heiðingjarnir gengu inn í helgidóm hennar en þeim hafðir þú bannað að ganga í söfnuð þinn. 11 Allur lýður hennar andvarpar, leitar sér viðurværis, lætur dýrgripi sína fyrir matbjörg til þess að draga fram lífið. Sjá þú, Drottinn, og lít á hversu ég er fyrirlitin. 12 Skiptir þetta engu yður sem fram hjá farið? Skyggnist um og sjáið, finnst sú kvöl sem jafnast á við þá sem á mig var lögð, mig sem Drottinn þjakaði á degi sinnar brennandi reiði? 13 Af hæðum sendi hann eld niður í bein mín, lagði net fyrir fætur mér, rak mig á bak aftur. Hann gerði mig að auðn, máttvana daginn langan. 14 Syndir mínar eru hnýttar í ok, tvinnaðar saman af hendi hans. Þær eru lagðar mér á háls, hann hefur lamað þrótt minn. Drottinn seldi mig í hendur þeirra er ég fæ eigi staðist í móti. 15 Drottinn forsmáði hetjur mínar sem í mér voru. Hann stefndi liði gegn mér til þess að yfirbuga æskumenn mína. Í vínlagarþró tróð Drottinn á meyjunni Júdadóttur. 16 Yfir þessu græt ég, augu mín fljóta í tárum. Því að huggarinn er mér fjarri, sá er hressti sál mína. Börn mín eru yfirgefin því að óvinurinn bar hærri hlut. 17 Síon fórnar höndum en enginn huggar hana. Drottinn bauð út óvinum Jakobs til að umkringja hann. Jerúsalem er orðin að viðurstyggð meðal þeirra. 18 Drottinn er réttlátur, ég óhlýðnaðist boði hans. Heyrið, allar þjóðir, horfið á kvöl mína. Meyjar mínar og yngismenn fóru burt herleidd. 19 Ég hrópaði á ástmenn mína en þeir brugðust mér. Prestar mínir og öldungar fórust í borginni er þeir leituðu matar til að draga fram lífið. 20 Sjá, Drottinn, ég er í nauðum stödd og ólga hið innra. Hjartað berst í brjósti mér því að ég var svo uppreisnargjörn. Úti fyrir sviptir sverðið mig börnum, inni ríkir dauðinn. 21 Þeir heyrðu andvörp mín en enginn huggaði mig. Allir óvinir mínir spurðu ógæfu mína, glöddust af því að þú gerðir þetta. Lát daginn koma sem þú hefur boðað, þá verða þeir jafningjar mínir. 22 Lát alla illsku þeirra koma fyrir auglit þitt og far með þá eins og þú fórst með mig sökum allra synda minna. Því að andvörp mín eru mörg og hjarta mitt sjúkt. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society