Biblia Todo Logo
Bìoball air-loidhne

- Sanasan -

Efesusbréfið 1 - Biblían (2007)


Kveðja

1 Páll, að vilja Guðs postuli Krists Jesú, heilsar hinum heilögu í Efesus sem trúa á Krist Jesú.

2 Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.


Lofgjörð

3 Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem í Kristi hefur blessað oss með allri andlegri blessun himinsins.

4 Áður en grunnur heimsins var lagður útvaldi hann oss í Kristi að hann hefði oss fyrir augum sér heilög og lýtalaus í kærleika.

5 Fyrir fram ákvað hann að gera oss að börnum sínum í Jesú Kristi. Sá var náðarvilji hans.

6 Hann vildi að vér yrðum til vegsemdar dýrð hans og náð sem hann hefur gefið oss í sínum elskaða syni.

7 Í honum, fyrir hans blóð, eigum vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.

8 Svo auðug er náð hans sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

9 Og hann hefur birt oss leyndardóm vilja síns, þann ásetning um Krist

10 sem hann í náð sinni ætlaði sér að framkvæma í fyllingu tímanna: Að safna öllu sem til er á himni og jörðu undir eitt höfuð í Kristi.

11 Í honum höfum vér þá líka öðlast arfleifðina eins og oss var fyrirhugað samkvæmt fyrirætlun hans er framkvæmir allt eftir ályktun vilja síns

12 til þess að vér, sem áður höfum sett von vora til Krists, skyldum vera dýrð hans til vegsemdar.

13 Í honum eruð og þér eftir að hafa heyrt orð sannleikans, fagnaðarerindið um sáluhjálp yðar og tekið trú á hann og verið merkt innsigli heilags anda sem yður var fyrirheitið.

14 Hann er pantur arfleifðar vorrar að vér verðum endurleyst Guði til eignar, dýrð hans til vegsemdar.


Þakkir og fyrirbæn

15 Eftir að hafa heyrt um trú ykkar á Drottin Jesú og um kærleika ykkar til allra heilagra

16 hef ég þess vegna ekki heldur látið af að þakka fyrir ykkur er ég minnist ykkar í bænum mínum.

17 Ég bið Guð Drottins vors Jesú Krists, föður dýrðarinnar, að gefa ykkur anda speki og opinberunar svo að þið fáið þekkt hann.

18 Ég bið hann að upplýsa sjón hjartans svo að þið sjáið hver sú von er sem hann hefur kallað okkur til, hve ríkulega og dýrlega arfleifð hann ætlar okkur meðal hinna heilögu

19 og hve kröftuglega hann verkar í okkur sem trúum. En þetta er sami áhrifamikli, kröftugi mátturinn

20 sem hann lét koma fram í Kristi er hann vakti hann frá dauðum og lét hann setjast sér til hægri handar á himnum,

21 ofar hverri tign og valdi og mætti, ofar öllum herradómi og sérhverju nafni sem nefnt er, ekki aðeins í þessari veröld heldur og í hinni komandi.

22 Allt hefur hann lagt undir fætur honum og gefið hann kirkjunni sem höfuðið yfir öllu.

23 En kirkjan er líkami hans og fyllist af honum sem sjálfur fyllir allt í öllu.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
Lean sinn:



Sanasan